Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Er ekki kominn tími til að tengja?

Haldið ykkur fast.. !

 heyrðu allt gott að frétta af mér. Styttist óðum í Danmörku, bara 2 mánuðir er ekki að trúa þessu og er þokkalegur kvíðahnútur kominn í mallakút í hvert skipti sem ég huxa um að ég er að fara ein til annars lands í 4 mánuði... jæks... reyndar er hún Ásdís úr vinnunni að flytja á sama tíma og verður vonandi ekki mjög langt í burtu svo ég geti ofsótt hana með heimsóknum svo ég drepist ekki úr leiðindum, svo veit ég af nokkrum góðum þarna úti svo þetta ætti allt að reddast. Svo er það námið, ætla að einsetja mér að standa mig hrikalega vel svo ég fái sem mest útúr þessu námi sem er ekkert gefins. Ég verð í skólanum frá 10-16 eða 17 mán - fim... frí á föstudögum svo það er ekkert smá sniðugt fyrir ykkur að koma til mín í helgarferð ;)

Jólin eru að koma. Ég get sko sagt ykkur það að ég er komin í klikkað jólaskap, ég er búin að skreyta og laga til (allsstaðar nema í herberginu mínu það er vibbi), búin að  baka 2 sortir af smákökum sem ég hef engan veginn gott af hehe, gerði einmitt sörur í fyrsta skipti og þegar ég sagði fólki að ég væri að fara baka sörur saup það hveljur og bara ,,gangi þér vel" síðan náttlega tókst þetta eins og í sögu, hrikalega vel heppnað hjá mér enda snillingur í eldhúsinu (hahahahahaha) djók... Ég veit ekki alveg hvernig jólin verða, verð vonandi bara á hú en Elfa systir er eitthvað að reyna að fá fjölskylduna suður held ég. Ég verð nú samt að eyða dögunum á Húsavík með bestustu vinkonunum sem verða held ég allar á hú um jólin, kveðja þær og knúsa áður en ég fer út. Svo á ég ótrúlega góða vinkonu sem ætlar að fylgja stelpunni út til danmerkur svo hún fái ekki bakþanka á flugvellinum og hætti við hehe elska þig vala mín ;)

Annars bara ef þið voruð ekki búin að uppgötva arthúr þa bara smellið hér og pissið í buxurnar ARTHÚR

heyrðu svo fór ég til talnaspekings um daginn... það var svaðalegt. maðurinn las mig eins og opna bók... sagði mér reyndar einu sinni að skokka á vegg hahaha... en ég þyrfti kannski að gera það til að átta mig á hlutunum. Var líka ágætis sálfræðitími í leiðinni, mæli með því að fara til talnaspekings.


í leikskóla er gaman..

í dag í hádeginu var linsubaunasúpa, þá heyrist í einum snillingnum:,,þegar baunir fara í sund, þá verður til baunasúpa."


það eru forréttindi...

... að vinna á leikskóla, var pínu pirruð og leið eitthvað í dag og þá heyrist mjóróma rödd ,,Brynja ég elska þig"  ;) og dagurinn verður aftur frábær ;)


áfengi í matvöruverslanir?

Fyrst þegar ég heyrði þetta nefnt þá var ég bara jájá því ekki það. Síðan hef ég verið að pæla, til hvers?

mér finnst ömurlegt fyrir t.d. óvirka alka að geta ekki farið út í búð án þess að hafa þetta fyrir augunum, eins og það væri kókaínhrúgur eða hass fyrir framan á fyrrverandi fíklum?? væri það í lagi?

Ég er líka ansi hrædd um að dagdrykkja eigi eftir að stóraukast, svo þægilegt að grípa með sér eina kippu þegar maður fer út í búð.

Æ þegar ég pæli í þessu þá finnst mér þetta eiginlega bara rugl og óþarfi, finnst þetta eigi bara að vera í sér vínbúðum, er reyndar sammála einni konu líka að nammi og gos ætti líka bara að vera selt í sér búðum;) held að þingmenn ættu nú að vera að beita sér fyrir einhverju mikilvægara.

Hvað segið þið? sjáið þið einhverja kosti sem ég sé ekki?


Já fínt já sæll já fínt já sæll já fínt já sæll og dilladilladilla!!

Heyrðu var að renna í hlað fyrir stundu síðan. Var að koma úr borginni, fór á fimmtudagskvöld, starfsdagur á föstudaginn, fór í leikskóla sem heitir laufásborg og eyddi þar deginum að fylgjast með hjallastarfinu þar. Ekkert smá æðislegur leikskóli í 101.

Já fórum semsagt eftir vinnu á fimmtudaginn svaka hressar, gíturuðumst aðeins í rútunni og svona. Síðan þegar við vorum komin undir hafnarfjall voru þar hvorki meira né minna en vindhviður uppá 33 m á sek og nokkrum sinnum sem við fukum til á veginum og Brynja hélt náttúrulega að hún væri að fara að deyja. hefði ég verið með blað og penna þá hefði ég pottþétt skrifað bréf með játningum synda minna og uppgjöri við fólkið mitt.. haha. Á föstudaginn fór ég bara svo til hennar ásdísar minnar og þar var sko kling kling kling held bara að hún eigi þægasta og yndislegasta barn í heimi. 4 mánaða skvísa og það heyrðist ekki í henni bara brosti allan tíman jidúddamía... verð að fá uppskriftina.

í gær var síðan árshátíðin.. tékkaði mig inná Hilton um 2 leytið og jisús mér leið nú bara eins og prinsessu eða juliu roberts í pretty woman, fór í bað og skellti mér svo í hilton inniskónna og bara hafði það ógeðslega gott... baðherbergið var huges og í eitt skiptið sem ég fór á baðið skildi ég ekki að ég heyrði svona svaka mikið í sjónvarpinu.. þá var bara svona útvarp inná baði sem útvarpaði sjónvarpinu... þannig að ef maður var að horfa á góðan þátt og þyrfti skyndilega að skreppa á klósettið þá þurfti maður bara ekkert að missa af neinu.

Síðan kom hún Alma mín og farðaði mig og greiddi mér og stóð sig ekkert smá vel þessi elska. Síðan var skellt sér í dressið og haldið niður í fordrykk... þurfti reyndar ekkert á fordrykk að halda var búin að sötra ófá hvítvínsglös.. síðan keyptum við ásdís og árni kærastinn hennar okkur hvítvínsflösku og fórum svo alltaf uppá herbergi að fylla á.  En þetta var nú bara mjög skemmtilegt nema ballið.. magga stína var að spila og ég er ekki að fíla hana. hehe fórum aðeins niður í bæ hitti rósu og ríkey ;* fórum aðeins á hressó síðan á nonnabita og heim.

góð helgi að baki og sorry eina ferðina enn þið sem ég hringdi í ... ég á ekki að eiga síma.

Takk fyrir frábæra helgi allir

Komnar myndir hérna

 


Bloggarinn

Brynja
Brynja
23. ára stelpu skjáta í ákafri leit að tilgangi lífsins á hinum ýmsu stöppistöðvum. Leikskólaleiðbeinandi, dóttir, systir, mágkona, vinkona, gítaráhugamanneskja, einnig tónlistar, elska grænan - ekki þó vinstri, elska vorið, sumarið, haustið og svo margt margt fleira.

Nýjustu myndir

  • SUC30004
  • SUC30032
  • SUC30027

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 156

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband